-124

15.05.2007 20:06:23 / brynja

Cold, drunk, tierd, lost

 

fokking shit..fyrsta framhaldskóla árinu mínu er lokið og ég hef ekkert þroskast. en þá sama fíflið sem hlær af rössum og kúk..en æjji þetta er nú samt sorglegt, ég á eftir að sakna þess að vera á vistinni með Signý og Lenu í herbergi að fíflast:( og ömurlegt að geta ekki hitt Sigga daginn út og daginn inn.. ja hvert er líf mitt að fara, í fyrsta skipti sem mér langar ekki að skólinn sé búin. guð blessi mig..En ég get huggað mig við það að ég á æðislega vini hér líka:)

:)

En þótt maður sé búin í skóla er ekkert sumarfrí. neinei..var í síðasta prófinu í gær og strax byrjuð að vinna eins og motherfucker, ja mínus fucker, því það vill svo til að ég er að passa börn í gæslu eftir skóla..jeijei! þau spurðu mig hvort ég vildi leika eftir skóla:) en ég sagði nei, ætla leika við Katrínu og hún vill bara leika við eina í einu..nanínaníbúbú.

jæja..veit ekki hvað tekur við núna.en ég ætla að kveðja og þessi síða er svona á góðri niðurleið. Signý bloggar aldrei og hún er að fara vestur til ömmu sinnar í mánuð og þannig það verður örruglega ekkert sett inn slúður ...veit ekki með myndi, það verður bara að koma í ljós..sársaukafullt

<33

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 01:01:23 / brynja

Gourmet grís

Haldiði ekki bara að ég og katrín höfum ekki bara skellt nokkrum gourmet grísakótilettum á grill núna um kvöldmataleitið..jiiminn elskan mín..og Þetta heppnaðist svona líka þrælvel,grilluðum karteflur með og maísstöngla:) og svo má ekki gleyma singer salatinu góða og yndislegu..og hvað þá köldu piparsósunni.mmm geri jói fel betur!

sætur gamall hundur

Hann puggi, alveg er þetta stórkostlegt með þennan bíl. hann þarf að fara í smurningu vélin bara byrjuð að hökta..nei segi svona..bara smá vindgangur í honum í kvöld en jóhann berry var nú ekki lengi að redda málunum hjá pugga sínum.

veit ekki afhverju ég var að blogga..bara svona því signý gerir það ekki fyrr en hún er dauð í gröfinni eða lengra..jess sör..en augnlokin eru byrjuð að þyngjast og mér langar að fara sofa góða nótt og ég lofa að næsta blogg verði skemmtilegt.

Falleg gömul mynd af klikkuðu bræðrum mínum sem eru í kasti við lögin takk fyrir takk!
hahaha..ein gömul af fermingunni minni..jeesús hvað allir eru fallegir:D
litlu jól einhvertíman.:) vinkonur við erum vinkonur jahá
 
og jeeei:D ;* svo umvafin hamingju

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 21:55:54 / brynja

No I did not have a hair

nexxpage2zd.jpg

Svarti sauðurinn

Tálsýni á ystu nasir..Föstudagskvöld runnið upp og Brynja komin með staf og prjónana. Blessuð sé þessi blessaða strönd, Skagaströnd. neinei..ekki einu sinni búið að kveikja á ljósastaurunum..þó að þess þurfi nú reyndar ekki, því það er frekar bjart úti..en mér langar í ljósastauraljós.

Rassgat ég vil fá nýjan skáp, nýtt rúm, og nýjan lit á herbergi..en ég bara get það ekki. því miður þá bara fær maður aldrei það sem maður vill..nema maður vilji það ekki eða vildi það einu sinni eða var misskilin. eða bara vóvóvó hey gemmér ennan skáp slut.

James Bond á spilaranum. öll fjölskyldan í faðmi hamingjunar með bros á vör..nema ég..ég hef kosið að sitja heldur inní herbergi alein með andrés önd blað og hlæja af glötuðu bröndurunum aftan á því..en hvern er ég að plata, það er ekki einu sinni svo gott því að ég á ekki einu sinni Andrés önd blað!!  þannig ég er bara einmanna manneskja ein inní aleinu herbergi

Sumarið er víst komið, og fallegi fuglasöngurinn byrjaður að hljóma innum gluggana..ég veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta. því það þýðir að ég verði að fá mér vinnu og þýðir einnig að skólinn sé alveg að verða búin og að það séu að koma próf( ekki skrópa krakkar 8-)) og svo þýðir það líka að ég verði að fara leggja haushelvítið í bleti og hugsa um næsta haust..hvaða ganga fætur mínir munu ganga þáá.. vonandi kemur það í ljós..um leið og helvítis ljósastauramaðurinn kveikir á þeim.

Mamma hans Halla kemur til dyra

má hann Halli koma út

hann er að boðra segir hún mamma hans

hann er að borða ristað brauð

en viltu ekki koma inn á fá þér líka?


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 14:15:40 / brynja

já mamma

Blogg hvað er það nú eiginlega..ég hef ekki heyrt um það síðan Seifur reið rækjum og Hitler gekk um götur þýskalands. en ég ætla að raða einhverri vitleysu saman í eitt þannig blogg í þetta skipti svona útaf það er nú einu sinni mánudagur.

Love Love Love

Helgin já..þá var söngkeppnin, þá fór ég og Signý til Ak og líka Elín Árdís með í prins polo og það var náttúrlega gaman að sitja í bíl eins og alltaf..ha ha ..við gistum hjá Eydísi frænku og lánið lék við okkur algjörlega heima hjá henni, því hún er í svona húsi með öðru fólki..je baby. en jújú það var fínt. Föstudagskveeeldið..ja þá fórum við á róló og rúnta..high five fyrir leiðinlegasta rúnti sem ég ef kynnst staðsettur á Akureyri sör jess sör. á laugardagsafternoon skelltum við okkur í sund og langt síðan ég fór síðast í sund og renndi mér niður sundrennibraut :) jeeesús minn..þetta er nú það leiðinlegasta blogg sem ég hef skrifað lengi..en áfam held ég ó já.. je baby svo um kvöldð  fór ég og Signý til Jónu( sem gefur ekki rotturass) að sækja Katrínu fínu til þess að fara á söööngkeppni og þarf svo sem ekkert að segja um hana ..sáu allir sem horfðu á hana að Inga Birna var best og ekkert annað rugl;)

eftir hana var pallaball og loooooooksins þegar við komumst inn þanngað eftir að hafa staðið í kremju get ekki hreyft sig og verið eins og í ólgusjó þá var bara gaman að hitta alla sem voru palkynhneigðir og rassaprump og hnegga..og náttúrulega einhvern vitleysing að nafni Heiðrún:* En ég og Siggi skelltum okkur á róóóló og þvílíka kúnstin til að komast inná þennan blessaða róló vell sem var girtur upp í heila...en´dúdúdú við vorum að róla þegar hehe gerðist að 2 stelpur fóru að pissa fyrir framan okkur í runna.. újé ég sá rass ..og já mér finnst piss og kúkur  fyndið:)  og svo var eiginlega ballið bara búið og páll óskar fór heim með stóra svarta.

ætlaði að setja mynd af hnegga en ég fann enga:(

En það var gaman  að koma á krókinn þegar bakaríði við brúnna var búið að vera áfangastaður okkar og heim á vistina að horfa á hnegga og fara í síðastur er lúði leikinn:)


» 13 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 16:06:31 / -124

..Is anybody out there?

- lag vikunnar :Losing my way -Justin Timberlake

Fimmtudagur í dag. þá á maður að bara að vera að taka til og borða popp ..og það er einmitt það sem við erum að gera..eða ætlum að gera. En náttúrulega má maður ekki bara gera eitthvað leiðinlegt á daginn, þannig að þá fer maður bara útí búð og kaupir sér litabók:D jibby kóla..

nú nálgast klukkan 4 og þá er Signý að fara á fund..merkisfund og Brynja segir henni að fara með bindi og í háhæluðum skóm. svona til að lyfta upp á tilveruna hans Kela gamla karls.

signy er farin..þannig ég er hér ein að horfa á teiknimyndir..því trúlegt að ég nenni að taka til án þess að hafa einhvern asna til að atast í og sópast með. ..jeesús..ég á etkki til eitt einasta orð yfir hvað teiknimyndir eru orðnar leiðinlegar..allt bara eitthvað..go jugi attack the green one. svona pokemon digtimon jarijari búbú..hvað varð um alla góðu þættina..eins og fíllin nellý og þarna rauðhærðu stelpuna og skjaldbökustrákinn og gullu grallara og skólabílinn sem gat verið allt sem hann vildi! eina góða teiknimyndin núna er dora the explorer( komiði lets go allir saman nú jarijari hér koma klossi og dóra)! Þannig greyjið krakkar nu til dags læra bara ensku og kunna ekki að meta góða skemmtun..eða eitthvað..

 Ég og Katrín erum að fara til Jónu um helgina í jússuparty:P ekki júllu..en sem sagt ætlar hin yndisfagra og hörundsfríða og mjúki sælgætisbangsinn minn jóna að sækja okkur á krók af öllum líkindum. og svo verður farið beint í búð þegar á Akureyrina er komið og keypt eitthvað sem kitlar bragðlaukana og eitthvað annað betra. en já ég get ekki beðið því aldrei höfum við haldið almennilegt jússukvöld..sem er náttúrulega bara hreinn hégómi..en svona er lífið.

við hérna um daginn vorum að horfa á big daddy myndina og þá getur strákurinn slefað svona alveg niðrí gólf..og mér langar svoo að geta gert það! eeen nei það hefur ekki tekist hingað til..þannig að ég missi bara slefið í gólfið..i am such a lady.

Can Anybody Out There Hear Me?
'cause I Cant Seem To Hear Myself
Can Anybody Out There See Me?
'cause I Cant Seem To See Myself
There's Gotta Be A Heaven Somewhere
Can Ya Save Me From This Hell?
Can Anybody Out There Feel Me?
'cause I Cant Seem To Feel Myself

vávávúa..hey svindl..í teiknimyndinni sem er núna þá var hann að hringja og þá gat hendi komið útúr símanum! hver væri ekki svo sem til í að eiga síma sem er hægt að stinga hendinni gegnum..þannig ef maður gleymir sokkunum sínum heima hjá ömmu sinni þá gæti maður bara tekið upp tólið og sagt "hey gamla give me my sock s,, já bara ef tæknin væri skrefinu áfram..fram á við.. þá væri nú líf í tuskunum og grátt hár úr söguni.

 

DSC01017

allar ungar stelpur með æskublóma og roða í vöngum og strákar, mega koma með hugmynd um nafn á einum útvarpsþætti sem ég og Signý mín kærkomin erum að stjórna á þriðjudagskvöldum klukkan 8-9.  við erum reyndar alveg komnar með einhverjar hugmyndir um nöfn..en það er kannski betra að vera ekkert að skýra þá frá okkar höfði.. því við erum nú soddan faresear og tollheimtumenn.

 

DSC01130

Ástrós,ég,jóhann,Katrín og Ragnar í stuði um helgina:P

en yfir og út og myndirnar eru teknar frá www.blog.central.is/-katrinkrimmi


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 14:56:11 / brynja

..I picture your face in the back of my eyes

 -lag vikunnar: Anna molly-Incubus

Sælt veri fólkið, Brynja hér ..og hef ákveðið reyndar að láta pennan liggja en lyklaborðið má svo sem fljóta með..understand?yeah great!

Funny Phrases

hahaha..Ég vissi strax hvað hann var að leika:D

ooo jæja..dagarnir hafa verið ljúfir bara hjá mééér..Mamma gellan og pabbi sjóari skelltu sér bara til Danmerkur og koma færandi hendi handa litla gullinu sínu..(vildi að ég væri að tala um mig en neeeeei)

helvíska hendin mín að bregðast mér..hún lét skjáinn á símanum mínum brotna..þannig að greyjið María mey þarf gleraugu..

Þetta líf sko..maður gerir ekki annað en að éta og skrópa í skólanum..heldur betur! og ég er bara ekki alveg búin að ákveða hvort ég ætli að taka mig á eða bara vera tossi:D maaamma mía

I picture your face in the back of my eyes,
A fire in the attic, proof of the prize,
anna molly, anna molly, anna molly,
I'm calling your name,
up into the air,
Not one of the others could ever compare,
anna-molly, anna-molly,

Svo eins og kannski einhver veit þá voru opnir dagar í skólanum síðustu viku og ég,alma,Signý og Lena skelltum okkur í ljósmyndamaraþon og það var gaman og auðvitað var aðalaðtriðið að taka myndir

Þetta átti til dæmis að vera skrifborðsstelling ..mjög listræn og eldurinn í hámarki

Öfund..og ekki einu sinni ég fatta þessa..en jaaaaa ekki meira í bili..skellum hinum inn seeeinna..:)

vááá..í fyrsta skipti á ævinni er ég kjaftstopp..og þar hafiði það.

og já við erum inní skáp

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 12:12:13 / signy

Ha? ég aftur ?

 

Jæja ég hef áhveðið að blogga .. en  það var ekki afþví að mér langaði bara segja ykkur frá tvennu sem gerðist í gær ..

 jæja dagurinn byrjaði ósköp venjulega bara fyrir utan það vöru oppnir dagar í ´skólanum og ég vaknaði kl: 8 og fór í sturtu og svona .. svo fórum við uppí skóla og vorum með ÚTVARPSÞÁTTT ! snillldin ein maður var nú samt ekkert að þora þessu fyrst en svo kom þetta alllt samana .... ég, brynja, lena og sunna vorum þarna og spjölluðum milli heima og geima :)  svo fórum við nú bara í mat og svona .. framveigis verður útvarpsþáttur á RásFás fm 93,7 allla þriðjudaga frá kl: 20-21 :) alllir að hlusta vííí ...

Svo blokkkaði þóra mig og litaði gera mann sætann fyrir árshátíðina sem er í kvöld :D svo lögðum við af stað fjúkkk ....

ferðin byrjaði ekkki vel, né endaði ! :|  viðbyrjuðum á að vera kominn réttt úturbænum þegar bíllinn slædar í hálfhring og við næstum útaf ! en héldum þó áfram einsog ekkert hafi í skorist.. svo héldum við áfram í vonum um að veðrinu færi að lynna og við færum að sjá eitthvað ... en fyrr en varið vorum við aftur farin að slida en þó bara 1/4 úr hring í þetta sinn og svona festum okkkur fínt .. shiiii en þá kom vignir og bjargaði okkkur :) svo höldum við dágóðann spöl áfram og viti mennn helduru ekkki að við höfum abra ekið/runnið útaf :S helv. smá svona sjokkk en allt fór vel ekkert ónýtt og enginn slasaður .. og alllir stoppuðu og buðu fram aðstoð sína en enginn var með kaðal .. svo kom steinunn og fór á þverá og hringdi í hjalla og þeir komu pabbi,hjalli og pétur og björguðu okkur en bilinn samt ekkert smá fastur slitnaði spottinn og læti náðum honum uppúr á svona 20 tilraun !! en þetta blesssaðist og allt að lagast ...

en já  svo er það árshátíðin í kvöld og ball og vonandi verður geggggjað !! hlakkar ekkert smá til !! ;)

En ég nenni ekki að hafa þettta lengra svo bara góða skemmtun í kvöld ...

- og munið gangið hægt um gleðinnar dyr 8)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 10:21:15 / signy

- Hópþrýstingur ?

 lag: hellogoodbye - here in your arms
jæja það er víst komið að mér áður en það verður farið að senda menn á mig :|
en ástandið er orðið það slæmt að við erum farnar að slást :O
ég er í engum tíma naninanibúbú og Brynja er í tíma og ég er með Lenu að borða nammmi ! :)
 ´
og ég og Lena vorum búnar að kepppa í einnni söngkeppni og það var geggggjað gaman ! :D
- en inga birna vannn og fer í stórukeppnina :)
árshátíðin næstuhelgi og við að fara að vera duglegar að stunda ljós og fara út að hlaupa þetta gengur ekki...
Um helgina kom brynja til mín og gisti eina nótt geggjað gaman og gerðum margt skondið og skemmtilegt :)
svo kom Ester á laugardaginn ;) og helgina bara búin að vera mjög róleg..
göngutúr, rúnt, kúr, borða :) híhí
smá hugleiðing sem ég og ester vorum að velta fyrir okkur ...
afhverju gallabuxur bláar ??
og afhverju er gallaefni blátt ??
gallar eru ekki allir bláir ..
ég bíð eftir sendingu því ég á von á pakkka frá Jósefínu frænku ;)
klippping í vikunni hvað skal gera ?
snoða ?
ljóst ?
permó ?
svart ?
brúnt ?
 strípur ?
segið ykkar skoðun :)
en ég kann ekki að blogga brynja svo þú mátt bara taka þetta að þér ..
Oggg kommentið líka hjá mér ! þá er ég glöð og ef þið gerið það ekki þá megið þið bara éta ömmu ykkkar !!!
 en ég kveð að sinnni hafið það sem allra best:) og ég set kannski bara myndir inn í staðinn :D

» 18 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 19:35:53 / brynja

The rest is still unwritten..

Lag vikunnar: Stone sour - Zzyzx

Heyrðu herra fiskifýla! ég held ég verði bara að svindla og blogga aftur, því hún mín yndisfagra og ljúfa Signý er ekkert á leiðinni að fara gera það!( þú verður rasskellt væna)

En já svo sem síðustu helgi fór ég sem sagt til Reykjavíkur, nánar tiltekið Kópabogs, til Heiðrúnar bestustu í heimi..og það var reyndar ekkert að gerast nema borða bollur og fara á einhverja mynd í bíó sem var hreint og beint ömurleg! ég skil ekki fólk sem dettur svona rugl í hug, eins og í þessari mynd þá var þetta um einhvern karl sem var með ótrúlega gott lyktarskyn og gat bara legið útí garði og fundið lyktina af fólki hinum megin á landinu eða whatever, en já svo fór hann eitthvað að búa til ilmvötn úr konum! ja alveg satt,svo bara í endinn þá fóru allir í orgíu út á götu og lifðu hamingjusöm að eilífu. Svo spyr maður sjálfan sig hvort maður sé ruglaður!?

 

ég er í félagi, ójá, og þá engu venjulegu félagi, ónei, félagi sem kallar sig svarti krossinn:) og við berjumst gegn ranglæti með réttlæti, þarna hittumst við og nokkrir félagar og spáum spilin í og tökum sverðin úr slíðri og mátum þrönga riddarabúninga:) Mitt leyni nafn er herra.skinka, frumlegt frumlegt.( litli bróðir minn bauð mér með í þetta félag með vinum hans)

 

http://www.hjalpumsilviu.com/ skoða skoða skoða, haha.ég hló svona útum annað:P

Where am I supposed to hide now?
What am I supposed to do?
You still don't think I'm gonna see this through?

Tell me I'm a part of history.
Tell me I can have it all.
I'm still too tired to care and I got to go.

 Hlynur var að prumpa.

shiit hvað Britney Spears er svöl. hún er skalli skallana:) ég ætla einhvern tíman að raka hárið allt af mér og láta tatto á kollinn sem segir ,,hey ég er skalli".. ´

Katrín:( svo ferðu bara ..ég veit ég veit, alltaf gott að hefna sín, en ég er þó búin að fá rónabrauð þannig þú mátt fara og skemmta þér, en með mig í huga:) því hver veit hvað getur gerst þegar þú ert ekki með mig í huga!

ég er þessi með stutta hárið ný búin að safna hári eftir skallann! mér er sama hver hinn er

 hahah..grænlenska er asnalegt tungumál:P http://lsg.bloggar.is/sida/35111/

Var í íslenskutíma í dag, fórum í svona látbragsleik og ég þurfti að leika 3 persónu frásögn og i hljóðvarp.. og mínir menn í mínum hóp gátu að sjálfssögðu giskað á það:) grasaferð og rúnir, það gat ég..úlala og svo sleikti ég olnbogann.

   

Hvað er málið með Einar Áskell?? ég er gjörsamlega með hann á heilanum:O ég er farin að hafa áhyggjur í alvöru.. var ég einhvern sem var skyldur manneskjunni sem bjó hann til..eða var ég hann í fyrra lífi..því ég veit ekki hvað er koma yfir mig..eina sem ég hugsa um er einar áskell, ég samdi ljóð um hann,ég hugsa um hann þegar ég er í sturtu..ég meira segja ýminda mér hvernig lykt sé af honum?..ég held að ég viti ekki lengur hvað ég eigi að halda!

og shit ég er hætt, og farin á vit ævintýranna!

 


» 26 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 16:54:54 / brynja

So When the night falls my lonely heart calls!

 Lag vikunnar: I wanna dance with somebody - Whitney Houston

Ó heilaga marmelaði! það var þorrablót í gær hér á Skagaströnd sem heppnaðist svona líka bara gríðaganta vel;) Allir að tjútta og tralla og hlæja..eins og ein kona sem var uppá svölum..þar sem ég var líka..hló eins og hún ætti lífið að leysa! og ég fékk mér haus..jajajaj..ég borðaði haus í gær með bestu lyst:) svona fólk sko..ég á skilið að fá klapp á bakið

Svo var ballið líka gott..var farið í svona hringdans og ég lenti með Almari, Ernu og engum öðrum en jóóóóóónmundi..hahaha..sá var sleipur í dansinum:P hahaha..heppnin alveg með mér þaar:D

Svo kom Jóna slummari þarna í nokkra stund:P það var nú gaman að sjá hana..því það var líka ég sem fékk miða handa henni..hjá gullfallegri vinkonu sem líkist þessari

hehe..ég elska svona krútt

svo dagurinn í dag er bara búin að vera fínn og flottur...vaknaði bara hress;) og fór að leika við katrínu og við tókum nokkur létt spor útí sem enduðu heima hjá Ragnari stefáni að horfa á one tree hill..jeeeesús..hvers á þetta fólk í þessum þætti að gjalda!? ég bara spyr

en ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili peace on the west side niggah yeah yeah freestyler from the house off pain...ef þið skiljið hvað ég á við píps.

ég Katrín og Alma:D hressar í anda kvöldsins

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 11:51:50 / signy

Signý Skooo :)

lag vikunna: Patience - Take that :D

- Signý :).. Ein gömul mynd híhí

Jæja þá er kominn tími á bloggg :) ..Ég - Signý hef nú áhveðið að henda inn einu volgu bloggi fyrir ykkur ;) Þó svo að það er ekki mikið að gerast ..

myndavélin er batteríslaus svo það koma myndir bara þegar það er búið að hlaða kvikindið ;)

Við fengum okkur gönguferð um daginn :) Byrjaði í Skaffó á að kaupa möffins og svala .. og það var snætt fyrir aftan skaffó .. Svo lá leið okkar uppí Hlíðó að kaupa popp .. og aðal hlátursefnið var að ég gekk með möffinsinn i hettunni allan tíman og var einsog kripplingur .. heheh

Við erum byrjaðar í svokölluðu nammi bindindindindi :haha: geggggjað duglegar .. borðum bara popp og ís og hnetur .. veit ekki hvort það sé eitthvað mikið eða eitthvað hollara en nammi en só við borðum ekki nammi ! :) erum bráðum búnar að vera í viku, og já Anna það er að takast hehehe ó beibí öll nammibindindin sem við stelpurnar fórum í grunnskóla en alltaf var svindlað og bara eittt nammi og ekkimeir hahah ..

Helgin hefði mátt vera betri ! :| var að vinna og svona .. Ester kom :) .. skellti mér á þorrablót á laugard. allveg skít ágætt balll bara ..

Brynju langar til Akureyrar .. óskar  eftir ferðafélaga með bílpróf :) .. ég er ekki í miklu stuðu í að fara :| er búin að vera eitthvað slöpp og læti svo ég ligg bara uppí rúmmi og brið verkjatöflur og læt Brynju þjónusta mig ;) ..

oooooooogg heyrðu gleymum nú ekki einu .. obbobbobb .. við krakkarnir ég, Brynja, Elli, Skafti og Alma skelltum okkur í sundpott á fimmtudaginn .. og ekki meira né minna í Grettislaug :D En sumir voru hræddari en aðrir en ég meina .. hvað er smá hræðsla milli vina ??

jááá vina ... stelpurnar eru komnar í sko og viti menn maður eyðir engum pening í þetta pjatt .. endilega allir að skrá sig í þetta ég meina svo skráir maður sig bara aftur í annað símafyrirtæki þegar maður vill :) En endilega prufa :) .. www.sko.is :D

En nenni ekki að hafa það lengra ..

hahahah elska þig ástin mín ;**

Takk fyrir helgina sæta ;* Elska þig..og gangi þér vel í aðgerðinni ! ;) verðum í bandi !

- Bæjóspæjó


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 13:53:25 / brynja

brynja Pípari

Lag vikunnar: lonestar - amazed

Allt í drasli hérna í kringum mig! mér hálflíður illa..Signý við verðum að taka til í dag og þá með ryksugu.. það gengur ekki að nota bara tuskubjálfa ! og það þarf nú mikið til að mér ofbjóði smá skítur..en þetta er full langt yfir línuna..þannig engin að koma í heimsókn fyrr enn á morgun:)

En ég var að spá ..því að í gær skruppum við Signý og Lena í verslunarleiðangur til Varmahlíðar..að það lét mig mikið hugsa er hægt að kalla Varmahlíð þorp? mér finnst þetta nú bara vera einhver hóll með einni götu!Og þar er líka símaklefi! hvers á þetta þorp..eða þessi hóll að gjalda!!? (segi ég sem kem sjálf úr pínulitlu skítapleisi)En synd og skömm að í sjoppunni þar fæst nammi sem ey fæst hér á krók..:$ bobb í bát. Svona sögur ganga um ganganna!

Ennnn yfir í allt aðra sálma..:).ég er svo fjandi ánægð með sjálfa mig..því að helvítis vaskurinn hérna á vistinni á klósettinu okkar var stíflaður og var ekki einu sinni hægt að láta vatn renna í örfáar sekúndur því þá var hann bara fullur og fór að leka út fyrir! þannig ég tók til minna ráða og skrúfaði vaskhelvítið í sundur..og pempían ég þurfti nú samt að vera með hanska;P En þar inni var margt að finna..um það bil 34 eyrnapinnar! hvaða rugludallur treður eyrnapinnum með gömlum eyrnaskít niður vaskinn sinn??..það þætti mér nú gaaaman að vita!

Eydís og ég:) ég sakna þín:(

ég og Heiðrún:)  sem ég sakna líka:(


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 13:47:44 / -124

Kúkur í kanil

Lög vikunnar: Ennþá saman og vöööðvastæltur

jæja komnar fyrir framan skjáinn enn og aftur!

Gær..já í gær þá var gaman því við rúntuðum mikið með núðluspaðan og Signý skellti sér í kraftgalla og þreif polo..sem er af einhverjum ástæðum orðinn alveg hreint koldrullugur aftur! Svo um kvöldið var ekkert annað hægt að gera nema fá sér miðætursamloku upp á nöfum því að það var heitt slátur í matinn á vistinni..og við látum það nú ekki snerta okkar varir! þannig við fengum grillið hennar Urðar besta nágranna í láni til að gera hvorki meira né minna en 7 samlokur:P sem við og lena og Katrín átum með bestu lyst:P

svo bara allt í einu var Arnrún komin á Krók með dökkt hár á vento, og hún gisti hjá okkur ásamt Katrínu og það var löngum hlegið dátt!

en núna á skróphundurinn hún Signý að vera í félagsfræði en mætti ekki..til þess að geta lært fyrir próf í náttúrufræði sem er víst á eftir..sem er um eðlismassa..? hvað sem það nú er! ja einmitt eimitt

UTN er best:haha: og jóhanna líka

Við  viljum bara ellalykt:D

                                                                                                         -blessó


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 11:14:30 / -124

Hvur skal bake köka í dajg ?

Nærbuxur í rasssii heii, Nærbuxur í rassi heii ...

fokk shitt fokk ..

sögu við ætlum að segja .. "afi" keyrði útaf og braut dekkkið :| og ekki nóg með það heldur bakkaði gamli á staur :S Okkur líður illla í hjartanu okkkar verslings gamli maðurinn .. og aumingja við urðum vitni af þessu ..

Brynja: vóó maðurinn keyrði bara útaf !

Signý: þetta er bara einhver vitleysingur ..

Brynja: jáá örugglega .. Eða hvað ?

Signý stekkur út og spyr: Er í lagi með þig?

Afi gamli: Jájá það væri fínt ef þið næðuð í lögregluna fyrir mig ..

Signý: skal gert ..

... og svo brunuðum við á löggustöðina og töluðum við lögguna sem kom svo og redddaði málunum :)

en nóg af því .. svo skelltum við okkur í heimsókn til Elfars :) og hann gaf okkkur saltpillur og við máttum prófa dótið hans :D ..

Svo förum við í dag til hans aftur að baka köku :D gamangaman ..

í gær líka fundum við loksins finding nemo spólu og horfðum á hana með bestu lyst:) og hlustuðum á Hugrún Lilju tala fyrir einhverja marglyttu sem bleksprautaði svo:P hehehíhí

Um helgina koma myndir inná síðan í gær:) víví

Hehe..við í góðum gír:)

-bæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill